Geirsgata
til bakaHamborgarabúlla Tómasar opnaði sinn fyrsta stað undir núverandi nafni við Geirsgötu í miðbæ Reykjavíkur 10. apríl árið 2004. Þetta einstaka hús var teiknað af þeim Einari Sveinssyni og Gunnari Ólafssyni. Í upphafi hýsti húsið hafnarvigt, kaffistofu og blaðasölu um lúgu í austurenda hússins. Húsið hafði staðið autt í nokkur ár áður en Tómasi datt í hug að opna þar hamborgarabúllu.
Stærri pantanir
Vinahittingur, vinnustaðapartý, afmælisveisla eða annars konar uppákomur? Hægt er að panta helling af borgurum og sækja. Ef þú getur af einhverjum ástæðum ekki sótt þá til okkar, hafðu samband og við leysum málið í sameiningu.
Heimsending
Ef þú vilt fá borgarann sendan heim þá geta vinir okkar hjá AHA reddað því.